Formúla 1

Rush frumsýnd í haust – stiklan komin

Birgir Þór Harðarson skrifar
Kappakstursmyndin Rush í leikstjórn Ron Howard verður frumsýnd 20. september. Myndin fjallar um epíska baráttu Niki Lauda og James Hunt um heimsmeistaratitilinn 1976, á gullöld Formúlu 1.

Lauda og Hunt voru eins ólíkir karakterar og hægt var að vera. Lauda fullkominn atvinnumaður sem lifði aðeins til þess að vinna kappakstursmót. James Hunt var þessi glaumgosi sem drekkti hræðslunni í adrenalíni, alkahóli og eitri til að geta mætt í næsta mót. Því fylgdi oft uppköst fyrir mót og sígó og bjór um leið og upp úr bílnum var komið.

Í stiklunni fyrir myndina sem frumsýnd var í dag má sjá að Howard er óhræddur við að sýna kappakstursbílana sem þau óargadýr sem þeir voru og gera sér mat úr hræðilegum banaslysum. Þá er slysi Niki Lauda í Nürburgring gerð góð skil.

Þeir Daniel Brühl og Chris Hemsworth fara með aðalhlutverkin í myndinni.



Það þykir enn ótrúlegt að aðeins nokkrar vikur liðu frá því að Lauda bjargaðist úr hryllilegu slysi í Þýskalandi, áður en hann keppti aftur. Lauda brann illa á höfði eins og hér sést.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×