Viðskipti erlent

Kaupa Tumblr á 1,1 milljarð bandaríkjadala

Yahoo var stofnað árið 1995
Yahoo var stofnað árið 1995 Mynd/ AFP

Stjórn bandaríska netrisans Yahoo hefur samþykkt kaup á samskiptamiðlinum Tumblr fyrir 1,1 milljarð bandaríkjadala. Þetta var kynnt rétt í þessu á Twitter síðu fjölmiðilsins Wall Street Journal.

Viðræður hafa verið aðilanna á milli upp á síðkastið um einhverskonar samstarf, en upphaflega stóð til að félögin myndu gera samning um að Tumblr myndi selja Yahoo þjónustu sína en ekki félagið í heild.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×