Viðskipti erlent

Húsleitir hjá þremur af stærstu olíufélögum Evrópu

Húsleitir voru gerðar í höfuðstöðvum þriggja af stærstu olíufélögum Evrópu í gærdag. Þessi olíufélög og fleiri eru grunuð um að hafa stjórnað heimsmarkaðsverði á olíu með víðtæku samráði undanfarin 10 ár.

Húsleitirnar voru gerðar að skipun framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.Um er að ræða olíufélögin Shell, BP og Statoil. Einnig var leitað hjá hinu virta greiningar og ráðgjafafyrirtæki Platts en það gefur út á hverjum degi viðmiðunarverð á hráolíu. Þær upplýsingar eru síðan notaðar til grundvallar í flestum olíuviðskiptum. Þar að auki nota ríkisstjórnir margra landa þetta viðmiðunarverð til að ákveða hve mikla skatta olíufélögunum ber að greiða í viðkomandi landi.

Í fréttum af málinu í evrópskum fjölmiðlum kemur fram að fyrrgreind olíufélög segjast öll ætla að vinna með yfirvöldum í að upplýsa málið.

Í norskum fjölmiðlum má sjá að málið er talið mikið áfall fyrir norskt viðskiptalíf.  Verdens Gang ræðir  við Thinu Saltvedt greinenda hjá Nordea sem segir að þetta mál gæti orðið svipað fyrir olíuiðnaðinn og Libor vaxtahneykslið var fyrir bankageirann. Sem kunnugt er hafa nokkrir stórbankar borgað tugi eða hundruð milljarða kr. í sektir vegna Libor vaxtahneykslisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×