Viðskipti erlent

Hlutabréf hækka í Evrópu en lækka á Íslandi

Hlutabréf hafa hækkað í flest öllum kauphöllum í Vestur Evrópu í dag. Hinsvegar hefur útvalsvísitalan í Kauphöllinni hér heim lækkað aðeins.

Mest hefur hækkunin verið í London en FTSE vísitalan hefur hækkað um 1,6%. Dax vísitalan í Frankfurt hefur hækkað um 1% og Cac 40 í París um 1,3%.

Þá hefur C20 vísitalan í Kaupmannahöfn hækkað um 1% og úrvalsvísitalan í kauphöllinni í Osló um tæpt prósent.

Hér heima hefur útvalsvísitalan lækkað um 0,2%. Hlutir í Högum hafa lækkað um tæplega 0,7% og hlutir í Eimskip um tæplega 0,6% það sem af er degi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×