Viðskipti erlent

Lítil lækkun á hlutum í Alcoa á Wall Street

Fjárfestar vestan hafs hafa greinilega ekki miklar áhyggjur af því að matsfyrirtækið Moody´s lækkaði lánshæfiseinkunn Alcoa, móðurfélag Fjarðaáls, niður í ruslflokk í gærkvöldi.

Við opnun markaða á Wall Street nú klukkan 14.00 að okkar tíma lækkaði gengi hluta í Alcoa um rétt rúmlega 1%. Sú hækkun hefur síðan verið að ganga til baka og í þessum skrifuðu orðum er lækkunin rúmlega 0,8%.

Uppfært: Lækkunin er aftur komin í rúmlega 1%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×