Íslenski boltinn

Sá samviskusami í sambúðinni með Eiði Smára

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hannes Þór í baráttu við Adil Rami í landsleik Frakka og Íslendinga.
Hannes Þór í baráttu við Adil Rami í landsleik Frakka og Íslendinga. Nordicphotos/AFP

„Yfirleitt er ég frekar kærulaus týpa og get verið utan við mig og ekki með allt á hreinu. Í herbergissamskiptum okkar Eiðs snýst þetta við," segir landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson.

Hannes Þór og Eiður Smári Guðjohnsen deila saman hótelherbergi í íslenska landsliðinu. Liðið dvelur á Hótel Nordica á Suðurlandsbraut og líkar Hannes vistin vel.

„Lífið á hótelinu er mjög ljúft. Það væsir ekki um okkur. Að sama skapi erum við einbeittir og á fullu í undirbúnignum fyrir verkefnið," segir Hannes og talið berst að herbergisfélaga hans, Eiði Smára.

„Hann er rándýr herbergisfélagi. Við erum búnir að vera saman í herbergi í dálítinn tíma. Það er fínt. Við náum ágætlega saman og horfum mikið á Klovn," segir markvörðurinn.

Hannes er einn þriggja leikmanna íslenska landsliðsins sem leikur með liði hér á landi. Hann á heima skammt frá hótelinu og því nokkuð sérstök staða að dvelja á hóteli með fjölskylduna í næsta húsi.

„Þetta er sérstök staða að eiga heima svona nálægt hótelinu. Ég hef aðeins verið að skjótast heim þegar mig vantar eitthvað. Svo er ég með lítið barn heima líka þ.a. ég reyni að kíkja heim þegar ég hef tækifæri til. Annars hefur mér fundist ágætt að kúpla mig út úr stressinu og leggjast inn á hótel í viku," segir Hannes.

KR-ingurinn segir tímann með landsliðinu sýna honum hvað fótboltinn hafi upp á að bjóða. Umgjörðin sé stigi fyrir ofan það sem hann sé vanur í deildinni hér heima.

„Það kitlar metnaðinn og minnir mann á það að heimurinn er stærri. Atvinnumennska er eitthvað sem ég vil upplifa. Ef möguleikinn er fyrir hendi þá reynir maður að ná því. Það væri gaman að taka þann slag," segir Hannes sem varð 29 ára í apríl.

Hann segir það sérstaka tilfinningu að vera orðin sá samviskusami líkt og tilfellið sé í sambúð þeirra Eiðs Smára í landsliðinu.

„Þetta er sennilega eina skiptið í lífinu sem ég er samviskusama týpan," segir Hannes kíminn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×