Íslenski boltinn

Djúpmenn elta Grindvíkinga

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Djúpmönnum gengur allt í haginn þessa dagana.
Djúpmönnum gengur allt í haginn þessa dagana. Mynd/Heimasíða BÍ/Bolungarvíkur
BÍ/Bolungarvík vann 2-1 heimasigur á KF í lokaleik 6. umferðar 1. deildar karla í dag.

Alexander Veigar Þórarinsson kom heimamönnum yfir strax á níundu mínútu. Áhorfendur á Torfnesvelli fögnuðu tuttugu mínútum síðar þegar Gunnar Már Elíasson skoraði.

Miðvörðurinn Milos Glogovac minnkaði muninn fyrir gestina í viðbótartíma en nær komust þeir ekki.

Djúpmenn hafa 15 stig eftir sex umferðir líkt og Grindvíkingar sem hafa betri markatölu í toppsæti deildarinnar. KF er í 8. sæti með sex stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×