Fótbolti

David James með ótrúlega vörslu á Ísafirði

Stefán Árni Pálsson skrifar
David James sýndi heldur betur úr hverju hann er gerður í leik ÍBV gegn BÍ/Bolungarvík í 16- liða úrslitum Borgunarbikarsins.

Eyjamenn unnu leikinn 1-0 en David James þurfti að hafa sig allan við þegar hann varði á einhvern ótrúlegan hátt skalla  frá Dennis Rasmussen Nielsen, leikmanni BÍ/Bolungarvíkur.

Sumir vilja meina að boltinn hafi verið kominn inn fyrir marklínuna en erfitt að greina það á myndbandi sem fylgir fréttinni hér að ofan.

Aaron Spear gerði eina mark leiksins og skaut ÍBV áfram í 8-liða úrslit bikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×