Íslenski boltinn

Valur mætir Stjörnunni í bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ú leik Vals og Stjörnunnar.
Ú leik Vals og Stjörnunnar. Mynd/Valli

Liðin sem kepptu til úrslita í bikarkeppni kvenna í fyrra mætast í fjórðungsúrslitum í ár. Dregið var í hádeginu í dag.

Valur mætir ríkjandi bikarmeisturum Stjörnunnar í stórleik umferðarinnar en sjö lið úr Pepsi-deild kvenna voru í hattinum að þessu sinni og eitt úr 1. deildinni - Fylkir.

ÍBV mætir Breiðabliki, Íslandsmeistarar Þórs/KA leikur gegn Þrótti og HK/Víkingur gegn Fylki.

Leikirnir fara fram þann 28. júní næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×