Viðskipti erlent

Viðskiptajöfnuður Japans tvöfaldast milli ára

Viðskiptajöfnuður Japans í apríl var tvöfaldur á við sama mánuð fyrir ári síðan. Þá eykst landsframleiðsla landsins á muni meiri hraða en áður var spáð og er það rós í hnappagat efnahagsstefnu Shinzo Abe forsætisráðherra landsins.

Í frétt um málið á Reuters segir að viðskiptajöfnuðurinn hafi numið 750 milljörðum jena, eða um 930 milljörðum kr. Þetta er aukning um 100,8% og mun meira en spáð hafði verið. Það er einkum veiking á gengi jensins sem veldur þessum árangri.

Samhliða því að upplýsingar um viðskiptajöfnuðinn voru birtar í nótt voru einnig birtar upplýsingar um að hagvöxturinn í Japan mældist 4,1% á fyrsta ársfjórðungi ársins. Það er einnig verulega umfram væntingar sérfræðingar sem spáð höfðu 3,5% hagvexti.

Efnahagsstefna Shinzo Abe hefur gengið út á að örva efnahagslíf landsins með m.a. gífurlegri seðlaprentun hjá Japansbanka. Hingað til hefur dæmið gengið upp því seðlaprentunin hefur veikt japanska jenið og þar með gert japanskar vörur samkeppnishæfari í verði á alþjóðamörkuðum. Stefnu Abe er ætlað að ná Japan upp úr þeirri stöðnun í efnahagslífi landsins sem ríkt hefur í næstum tvo áratugi.

Hjá Reuters kemur fram að stefnan hafi hingað til leitt til þess að væntingavísitala japanskra neytenda hefur hækkað fimm mánuði í röð. Þá segir að bankar landsins hafi aukið útlán sín um 1,8% í maí samanborið við sama mánuð í fyrra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×