Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Valur - Stjarnan 0-3 | Meistararnir í undanúrslit

Sigmar Sigfússon skrifar
Bikarmeistarar Stjörnunnar komust í kvöld áfram í undanúrslit Borgunarbikars kvenna eftir 3-0 sigur á Val en þessi sömu lið áttust við í úrslitaleiknum í fyrra.

Rúna Sif Stefánsdóttir skoraði tvö mörk fyrir Stjörnuna í kvöld og Danka Podovac eitt.

Stjarnan, Breiðablik, Fylkir og Þór/KA eru því komin áfram í undanúrslit bikarsins.

Leikurinn fór rólega af stað og gerðist lítið í leiknum þar til á 15. mínútu. Harpa Þorsteinsdóttir, sóknarmaður Stjörnunnar, átti þá langa og góða sendingu inn fyrir vörn Vals. Þar var Rúna Sif Stefánsdóttir mætt á harðaspretti og tók nokkrar snertingar á knöttinn áður en hún skaut framhjá markmanni Vals og skoraði.

Eftir markið voru Garðbæingarnir mun sterkari aðilinn í leiknum. Valsstúlkur áttu ekki sinn besta leik í fyrri hálfleik og fór svo að gestirnir bættu við marki á 36. mínútu.  Þar var að verki Danka Podovac. Danka fékk boltann inn í teig og skoraði auðveldlega með fínu skoti. Staðan var 0-2 fyrir Stjörnustúlkum í hálfleik.

Seinni háfleikur var vægast sagt bragðdaufur og lítið um færi. Valsstúlkur sóttu þó örlítið í sig veðrið undir lok hálfleiksins og voru ansi líklegar á köflum. Það var þó Stjarnan sem skoraði þriðja og síðasta mark leiksins. Rúna Sif skoraði sitt annað mark í leiknum á 86. mínútu eftir sendingu frá Hörpu líkt og í fyrsta markinu. Skotið var langt fyrir utan teig og söng í netinu, einkar glæsilegt hjá henni.

Þetta mark var rothöggið sem Stjarnan var að leita að. Stjarnan vann, 3-0, og liðið því komið áfram í undanúrslit Borgunarbikarsins. Stjarnan er ríkjandi bikarmeistari og verður að teljast ansi líkleg þetta árið einnig.

Þorlákur: Þetta var nokkuð öruggt

„Ég er fyrst og fremst ánægður. Það er komin þreyta í flest lið í deildinni vegna álags og þetta gat endað hvoru megin sem var. Þær náðu ekkert að opna okkur í þessum leik. Þetta var nokkuð öruggt,“ sagði Þorlákur Már Árnason, þjálfari Stjörnunnar eftir leikinn.

„Þetta var þægileg forysta og við duttum aðeins of aftarlega hérna í seinni hálfleik. Það var ekki planið en það gerist.“

En er það einhver óska mótherji í næstu umferð?

„Ég veit ekki hverjir fóru áfram en það væri fínt að fá heimaleik núna,“ sagði Þorlákur léttur í lokin.

Helena: Ekki líkar sjálfum okkur

„Ég er mjög ósátt við þetta. Við vorum einhvernveginn ekki klárar, hræddar og ekki líkar sjálfum okkur,“ sagði Helena Ólafsdóttir, þjálfari Vals hundfúl eftir leikinn.

„Síðan í þessu þriðja marki hjá þeim vorum við farnar að taka sénsa. Við fengum ódýr mörk á okkur í fyrri hálfleik og svo vantaði mikið upp á sóknarleikinn hjá okkur.“

„Það voru ekki mörg opin færi í þessum leik og þessi mörk sem við fengum á okkur eru allt mörk sem við eigum að verjast,“ sagði Helena að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×