Íslenski boltinn

ÍBV mætir KR í bikarnum

Stefán Árni Pálsson skrifar
ÍBV leikur gegn KR í stórleik fjórðungsúrslita Borgunarbikarkeppni karla en dregið var í hádeginu í dag.

2. deildarlið Gróttu fékk heimaleik gegn Fram og 1. deildarlið Víkings tekur á móti Breiðabliki. Pepsi-deildar liðin Fylkir og Stjarnan mætast svo í Árbænum. Leikirnir fara fram 7. og 8. júlí.

Hægt var að fylgjast með lýsingunni á Twitter-síðu íþróttadeildar Vísis en hún birtist sjálfkrafa hér neðst í fréttinni.

Leikirnir:

ÍBV - KR

Fylkir - Stjarnan

Grótta - Fram

Víkingur - Breiðablik






Fleiri fréttir

Sjá meira


×