Viðskipti erlent

Orrustan um snjallúrið að hefjast

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Á síðustu vikum hefur Apple ráðið til síns fjölmarga verkfræðinga og vísindamenn sem einvörðungu munu vinna að þróun iWatch snjallúrsins.
Á síðustu vikum hefur Apple ráðið til síns fjölmarga verkfræðinga og vísindamenn sem einvörðungu munu vinna að þróun iWatch snjallúrsins.
Þessa dagana er snjallúrið mál málanna hjá helstu tæknifyrirtækjum veraldar. Þau eru mörg komin langt á leið í þróunarvinnu og bandaríski tæknirisinn Apple er þar enginn eftirbátur.

Á síðustu vikum hefur Apple ráðið til sín fjölmarga verkfræðinga og vísindamenn sem einvörðungu munu vinna að þróun iWatch snjallúrsins.

Stjórnendur Apple hafa lítið viljað tjá sig um tækið en þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki um iWatch síðustu misseri.

Líklegt þykir að úrið verði tengt iPhone snjallsímanum í gegnum Bluetooth tækni og munu notendur geta hlustað á tónlist í gegnum úrið, ásamt því að taka við og senda smáskilaboð.

Hugmynd Samsung frá árinu 2009MYND/SAMSUNG
Fregnir herma að Samsung og Dell séu að þróa eigin útgáfur af snjallúrum. Google hefur einnig lýst yfir áhuga á tækninni en fyrirtækið hefur á síðustu misserum einblínt á þróun Google Glass, snjallgleraugna sem væntanleg eru á markað í haust.

Þrátt fyrir afgerandi markaðshlutdeild á snjallsímamarkaðinum hefur Apple átt erfitt uppdráttar síðustu mánuði. Ástæðan fyrir þessu er í senn harðari samkeppni frá fyrirtækum á borð við Samsung sem og útþynning markaðarins, enda hefur hágæða snjallsímum fjölgað verulega á síðustu árum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×