Íslenski boltinn

Flottasta mark sumarsins?

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Elvar Páll hleður í þrumuskotið á Sauðárkróksvelli í gær.
Elvar Páll hleður í þrumuskotið á Sauðárkróksvelli í gær. Mynd/Skjámynd
Elvar Páll Sigurðsson tryggði Tindastóli óvæntan 2-1 sigur á Haukum í 10. umferð 1. deildar karla í knatttspyrnu í gærkvöldi.

Liðin eru hvort á sínum enda töflunnar enda Haukar verið í nokkuð góðum gír en Stólarnir átt erfitt uppdráttar í sumar. Flest stefndi í 1-1 jafntefli þegar stundarfjórðungur lifði leiks. Þá fékk Elvar Páll boltann á miðjunni.

Blikinn uppaldi tók á sprett upp völlinn en ákvað fljótlega að hlaða í skot. Niðurstöðuna má sjá eftir um fimm mínútur í myndbandinu hér að neðan. Óhætt er að segja að um sé að ræða eitt af glæsilegustu mörkum sumarsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×