Íslenski boltinn

Guðrún: Er svo glöð að ég get ekki talað

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðrún Arnardóttir lengst til hægri.
Guðrún Arnardóttir lengst til hægri. Mynd / Ernir
„Ég er svo glöð að ég geti ekki talað,“ sagði Guðrún Arnardóttir, markaskorari Blika, í viðtali við Kolbein Tuma Daðason eftir sigurinn gegn Þór/KA  2-1 í dag.

Breiðablik vann sinn tíunda bikarmeistaratitil á Laugardalsvelli í dag.

„Þetta var fyrsta markið sem ég skora í sumar og ótrúleg tilfinning að sjá boltann í netinu.“

„Ég kom til félagsins til að vaxa sem leikmaður og tel mig hafa gert rétt í því að koma til Breiðabliks.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×