Viðskipti erlent

Samsung kynnti Galaxy snjallúr

Jón Júlíus Karlsson skrifar
Nýja snjallúrið frá Samsung hefur litið dagsins ljós.
Nýja snjallúrið frá Samsung hefur litið dagsins ljós. Mynd/Samsung
Samsung kynnti í dag nýjustu afurð sína á IFA rafrækjasýningunni í Berlín. Um er að ræða snjallúr sem Samsung ber miklar væningar til. Segja má að Samsung sé að ríða á vaðið því búist er við að stór tæknifyrirtæki á borð við Apple og Sony muni kynnar nýjar vörur í svipaðri línu á næstu vikum.

Galaxy Gear snjallúrið frá Samsung hefur 2,5 tommu skjá og einnig myndavél. Það hefur svipað viðmót og snjallsími og getur einnig nálgast tónlist úr snjallsíma. Kynningu Samsung lauk nú fyrir skömmu en í myndbandinu hér að neðan má sjá það helsta sem nýja snjallúrið frá Samsung hefur upp á að bjóða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×