Fótbolti

Aron Elís á reynslu til AGF

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Elís Þrándarson í leik með Víkingum
Aron Elís Þrándarson í leik með Víkingum mynd / daníel
Aron Elís Þrándarson, leikmaður Víkings, mun á næstu dögum fara til danska félagsins AGF á reynslu en þetta kemur fram á vefsíðunni 433.is dag.

Aron átti magnað tímabil með Víkingi í sumar og var meðal annars valinn besti leikmaður deildarinnar og sá efnilegasti.

Aron er fæddur árið 1994 og skoraði 14 mörk í sumar en hann var lykilmaður í liði Víkings sem fór upp í Pepsi-deildina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×