Íslenski boltinn

Skagamenn hafa miklar væntingar til Gunnlaugs

Stefán Árni Pálsson skrifar
mynd/ kfia.is
Gunnlaugur Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari ÍA og mun hann taka strax við liðinu. ÍA féll í sumar úr Pepsi-deildinni og verður það verkefni Gunnlaugs að koma liðinu aftur upp í hóp þeirra bestu.

Gunnlaugur lék sjálfur lengi vel með Skagaliðinu en sem þjálfari hefur hann starfað hjá Selfoss, Val, KA og HK en hann fór með HK-inga upp í 1. deildina í sumar.

Hér að neðan má lesa yfirlýsingu frá Inga Fannari Eiríkssyni, formanni knattspyrnudeildar ÍA, sem birtist á vefsíðu ÍA rétt í þessu.

Það er okkur mikil ánægja að kynna Gunnlaug Jónsson sem þjálfara meistaraflokks karla.

Knattspyrnufélag ÍA er sigursælasta félag landsins frá stofnun KSÍ. Undanfarin ár hefur frammistaða liðsins verið undir væntingum. Framundan er skemmtilegt verkefni og markmiðið er að koma ÍA aftur í fremstu röð, þar sem við teljum okkur eiga heima. Það verkefni krefst þolinmæði og þrautseigju.

 

Undanfarin 4 ár hefur átt sér stað mikið uppbyggingarstarf í yngri flokkum félagsins með markvissu uppeldis og afreksstarfi sem þegar er farið að skila árangri í auknum fjölda iðkenda. Við væntum þess að á næstu 3 árum muni þetta starf skila af sér ungum og efnilegum leikmönnum fyrir félagið.

 

Það er mjög mikilvægt að fá rétta manninn til starfa á þessum tímapunkti og erum við mjög heppin að hafa náð samkomulagi við Gulla um að taka að sér þetta verkefni. Við teljum mikilvægt að fá nýjar áherslur og aðferðir. Gulli á að baki farsælan feril sem leikmaður, er ungur þjálfari en býr yfir mikilli reynslu og hefur náð góðum árangri með þau lið sem hann hefur þjálfað, komið bæði Selfoss og HK upp um deild.  

 

Gulli er sterkur karakter sem passar vel við það uppbyggingarstarf sem framundan er.

 

Við bjóðum Gulla velkominn á heimaslóðir á ný og höfum miklar væntingar til samstarfsins.

 

F.h.

Knattspyrnufélags ÍA,

Ingi Fannar Eiríksson

Formaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×