Viðskipti erlent

Twitter skaut Google ref fyrir rass

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Hlutafjárútboð samfélagsmiðilsins Twitter í gær er með því stærra sem sést hefur meðal internetfyrirtækja.
Hlutafjárútboð samfélagsmiðilsins Twitter í gær er með því stærra sem sést hefur meðal internetfyrirtækja. mynd/AFP
Hlutafjárútboð samfélagsmiðilsins Twitter í gær er með því stærra sem sést hefur meðal internetfyrirtækja.

Í frétt Venturebeat segir að Twitter sú númer tvö á lista yfir hlutafjárútboð á bréfum internetfyrirtækjum. Þar trónir Facebook á toppnum en Twitter náði að skjóta Google, sem var sett á markað árið 2004, ref fyrir rass.

Upphaflegt verð hlutabréfa í Twitter var 23 dollarar en þegar kauphöllin opnaði í New York í gær var verðið þegar komið í 45,1 dollar. Verðið hélst frekar stöðugt yfir daginn og var í 44,90 dollurum þegar kauphöllin lokaði.

Í lok þessa viðburðaríka dags var Twitter því metið á tæplega 25 milljarða dollara.


Tengdar fréttir

Twitter slær í gegn á Wall Street

Verið er að skrá samfélagsmiðilinn Twitter á markað í kauphöllinni í New York í þessum skrifuðu orðum. Um er að ræða stærstu skráningu á netfyrirtækis á markað síðan Facebook var skráð í maí á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×