Viðskipti erlent

Ítalska flugfélagið Alitalia á barmi gjaldþrots

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Núverandi hluthafar hafa lagt 173 milljónir evra til félagsins.
Núverandi hluthafar hafa lagt 173 milljónir evra til félagsins.
Ítalska flugfélagið biðlar nú til erlendra fjárfesta um björgun, en félagið er skuldum vafið og þarf á 300 milljónum evra að halda fyrir 8. desember. Mbl greinir frá þessu.

Þrátt fyrir þetta eru stjórnendur fyrirtækisins bjartsýnir á að geta útvegað nægt fjármagn til að koma í veg fyrir gjaldþrot þess. Núverandi hluthafar hafa lagt 173 milljónir evra til félagsins.

Þó hefur ekki tekist að sannfæra Air France KLM, stærsta hluthafann með 25% hlut, um að auka við hlut sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×