Sannleikurinn: Vonar að pabbi verði ekki mikið fullur Andri Þór Sturluson skrifar 21. desember 2013 15:25 Bestu jólin sem Jón Óskar hefur upplifað var þegar pabbi hans lá veikur á spítala.
Jón Óskar átta ára vonar að pabbi sinn verði ekki mikið fullur um þessi jól, minnugur hátíðarinnar í fyrra þar sem faðir hans var hundleiðinlegur og frekar mikill asni nánast allan tímann sem hann var á annað borð vakandi. Tjáði Jón Óskar fréttastofu að hann væri ekki vongóður um að faðir sinn myndi geta hamið áfengisneyslu sína þessa hátíð frekar en aðra frídaga. Sérstaklega í ljósi þess að hann hefur þegar séð til hans bera allmarga poka merkta Vínbúðinni niður í geymslu þar sem fjölskyldan er með annan ísskáp sem faðir hans notar mikið fyrir bjór. „Ég leyfi mér þó að vera bjartsýnn og vona að hann sofni snemma. Allavega áður en mamma og við förum að fara í taugarnar á honum,“ sagði Jón Óskar við fréttastofu.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem á ekki við vandamál að stríða.
Harmageddon Mest lesið Púlsinn 18.ágúst 2014 Harmageddon Daft Punk koma fram á Grammy verðlaununum á næsta ári Harmageddon Frábær stemmning á Secret Solstice Harmageddon Stúdentar sólgnir í ölið Harmageddon Linkin Park leika Hybrid Theory í heild sinni Harmageddon „Þeir sleppa aðal sannleikanum“ Harmageddon Lásasmiður sem skjöldur lögreglu? Harmageddon Er fólk sem hnerrar með látum að gera það viljandi? Harmageddon Notuðu Twitter aðgang Mike Tyson til að kynna nýja plötu. Harmageddon Barði í Bang Gang í hljómsveit með Jean-Benoit úr Air Harmageddon