Ein óheppnasta körfuboltakona landsins Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2013 06:30 Meiðslasaga Berglindar, lengst til hægri, er löng Fréttablaðið/Stefán
Berglind Gunnarsdóttir er ein efnilegasta körfuboltakona landsins og búin að vera lengi í stóru hlutverki hjá Snæfelli þrátt fyrir að vera ekki orðin tvítug. Það er jafnframt erfitt að finna óheppnari leikmann því eftir krossbandsslit og tvær hnéaðgerðir hefur hún glímt við það að fara mörgum sinnum úr axlarlið á þessu tímabili. Berglind fór enn á ný úr axlarlið í leik á móti KR um helgina. „Þetta er mjög sárt," segir Berglind. „Það er enginn búinn að afskrifa neitt. Ég er að fara í myndatöku á morgun (í dag) og þá ráðfæri ég mig við lækni í leiðinni. Þá kemur líklega í ljós hvert framhaldið verður. Þetta er orðið frekar slæmt þegar þetta er líka farið að gerast í svefni. Það er því ekki eins og það þurfi mikil átök til," segir Berglind sem fékk fyrst högg á öxlina síðasta sumar. „Svo gerðist þetta fyrst almennilega í leik á móti Grindavík í byrjun tímabilsins. Þá ráðfærði ég mig við lækni og við keyptum hlíf. Svo hélt þetta áfram að gerast og ég tók því langa pásu fram að áramótum og fór bara að styrkja öxlina," segir Berglind en það breytti því ekki að þetta hefur þrisvar sinnum hent eftir áramót. Snæfellsliðið saknar Berglindar mikið en liðið tapaði ekki leik í byrjun tímabils meðan hún spilaði á fullum styrk. „Við erum frekar fáliðaðar og megum ekki við miklum meiðslum," segir Berglind en hún skoraði 14,5 stig í leik áður en hún fór fyrst úr axlarlið í leik. „Ég er svo sem orðin vön því að sitja á bekknum því ég er búin að vera svo mikið í meiðslum. Það er því ekki í fyrsta skiptið sem ég þarf að gera það," segir Berglind enda einstaklega óheppin. „Það er eins og ég taki öll meiðsli liðsins á mig. Ég er búin að fara í tvær hnéaðgerðir og svo gerist þetta. Þetta er orðinn ágætis pakki," segir Berglind.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Ný rangstöðutækni á HM Fótbolti Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Handbolti Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sport Leyfislaus CrossFit-dómari og keppandinn hans í tveggja ára bann Sport Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Fótbolti „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Íslenski boltinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Enski boltinn Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Körfubolti Manchester United kaupir Ederson Fótbolti Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Enski boltinn Fleiri fréttir Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Sjá meira