Heimskur maður kýs Halldór Halldórsson skrifar 25. apríl 2013 06:00 Ég kann ekki að meta sjóræningja. Í mér býr djúpstæður frumótti við sjóræningja. Mér svelgdist á kaffinu mínu þegar ég las að í framboði væri flokkur sem kennir sig við sjóræningja. Hvað næst? Hákarlaflokkurinn? Kóngulóahreyfingin? Eða Vinstri hreyfingin grænt flugslys? Sjóræningjar eru óbilgjarnir og ósanngjarnir, æðaberir tækifærissinnar sem svífast einskis til að vænka hag sinn. Þeir eru líka hallærislegir – fullorðnir menn í einhverju blúndudrasli með kögri og svo breytast þeir aldrei. Sama hvað er í gangi í heiminum – sama hvað nútíminn virðist vera opinn og spennandi, þá eru það sömu helvítis frasarnir. Sjóræningjar eru glataðir og þeir LÍÚ-a að fólki – og einmitt þess vegna ætla ég ekki að kjósa Framsókn eða Sjálfstæðisflokkinn. Að öðru – er ekki frekar borðliggjandi að sjá þennan samning frá Evrópusambandinu, áður en við ákveðum okkur? Er það ekki eini sénsinn til að taka upplýsta ákvörðun? Ég meina partí sem hljómar ekkert spennandi verður það oft þegar maður veit að það er frír bjór og snakk handa öllum. Það er til dæmis gefið mál að það er heilt yfir betra veður í Evrópusambandinu – en það er á Íslandi. Hver veit, kannski er hægt að flytja nokkrar gráður hingað yfir. Við vitum það allavega ekki fyrr en við sjáum plaggið. Að halda öðru fram eru bara stælar. Og örstutt. Af hverju held ég að nokkrir frambjóðendur í Pírataflokknum séu virkilega góðir í tölvuleikjum og af hverju er það ekki tilgreint á vefsíðu þeirra? Af hverju gerði Lýðræðisvaktin ekki auglýsingu sem byggði á Næturvaktinni, þar sem Egill Ólafsson er Georg Bjarnfreðarson, Þórhildur Þorleifs er Daníel og Þorvaldur Gylfa er Ólafur Ragnar? Hann að segja „Já sæll“ með sínum einstaka talanda er ávísun á „viral“-snilld. Og hvenær ætlar fólk að átta sig á því að það er ekkert jafn púkó og ungliðahreyfingar? Nema eins og í tilfelli Bjartrar framtíðar, þar sem ungliðahreyfingin er líklega skipuð leikskólabörnum. Í lokin vil ég taka eitt fram – það er bara ein leið til að stjórna hlutunum – og það er illa. Sjáumst á kjörstað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bakþankar Kosningar 2013 Skoðun Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun