Skrifa handritið að Rétti 3 ÁP skrifar 1. júní 2013 07:00 Þeir Kristinn, Jón Ármann, Andri og Þorleifur skrifa þriðju seríuna af Rétti. Fréttablaðið/Vilhelm „
Við stefnum á að taka Rétt í nýjar hæðir,“ segir Kristinn Þórðarsson einn af fjórum handritshöfunum að þriðju seríunni af íslensku lögfræðispennuþáttunum Rétti. Ásamt honum mynda þeir Þorleifur Arnarsson, leikstjóri, Jón Ármann Steinsson, handritshöfundur og Andri Óttarson, lögfræðingur og fyrrum framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins handritateymið. Skrifin byrjuðu í síðustu viku og lýst Kristni vel á nýja teymið. „Það er mikill fengur fyrir okkur að fá Þorleif til liðs við okkur og svo erum við Jón Ármann vinir síðan í Los Angeles þar sem hann lærði handritaskrif. Andri er svo ekki bara fær penni heldur góður lögfræðingur og getur veitt okkur líka faglega ráðgjöf við skrifin,“ segir Kristinn sem sjálfur kom að fyrstu Réttar seríunni en síðastu tvær hafa verið skrifaðar af Sigurjóni Kjartanssyni og Margréti Örnólfsdóttur. Búist er við því að þættirnir fara í framleiðlsu og sýningu á Stöð 2 á næsta ári en þriðja serían mun telja á átta þáttum. Kristinn segir þá ætla að byggja á sama grunni og leikarateymi og í fyrstu tveimur seríunum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir og Magnús Jónsson voru meðal aðalleikara í fyrstu tveimur seríunum. „Við kynnum allavega einn nýjan karakter til leiks. Við stefnum á að koma á óvart og koma með meiri spennu inn í þessa seríu.“
Mest lesið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Áslaug býður í partý Lífið Matt Brown er látinn Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Fleiri fréttir Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Ástin sem eftir er sigursælust á Eddunni „Þetta er búið að vera eins og einhver brandari“ Barátta við fíkn, íslensk millistétt og æðavarp á Skjaldborg Rick og Morty á stóra skjáinn Nítján ára þegar Óskarsverðlaunahafi sýndi henni punginn Dóra og Glassriver náðu samkomulagi Stefnir Cameron fyrir að stela andliti hennar Tvær þáttaraðir og tvær myndir á leiðinni frá Vesturporti Andri Snær verðlaunaður og ný stikla fyrir Um tímann og vatnið Sjá meira