Árshátíð þvermóðskunnar Saga Garðarsdóttir skrifar 10. júní 2013 09:00 Kæru velunnarar þrjóskunnar, senn líður að árshátíð okkar. Tilgangur þessa fréttabréfs er að minna ykkur á að allt verður samkvæmt hefðunum. Þessi orð eru nákvæmlega þau sömu og þið lásuð í fyrra og ekkert ætti að koma ykkur á óvart. Það er jafn mikilvægt nú sem endranær að okkar góðu starfsemi sé haldið til streitu. Stöðugt er sótt að okkur og þess krafist að svokölluð umræða eigi sér stað um hitt og þetta. Enn hefur ekki tekist að kæfa okkar forna fjanda, mótrök, sem skjóta sífellt upp kollinum á ný og til eru ljót dæmi þess að þau bíti með þeim afleiðingum að íhaldssömustu menn láti af fastmótuðum skoðunum. Ef mótrökin fá að vaða uppi má gera ráð fyrir að við fáum yfir okkur enn eina delluna eins og kvenfrelsi, náttúruvernd og umburðarlyndi gagnvart útlendingum. Vissulega bendir allt til þess að opnar umræður séu bara bóla sem mun springa líkt og internetið en til vonar og vara er gott að rifja upp viðbragðsáætlanir okkar gegn öllu óþekktu: 1. Safnaðu aðeins þeim upplýsingum sem styðja hugmyndir þínar um heiminn. Aðrar upplýsingar eru ekki til. 2. Ekki spyrja spurninga. Sýnt hefur verið fram á að fólk sem spyr spurninga er líklegra til að endurmeta afstöðu sína og þaðan af verra –skipta um skoðun. Fátt er viðurstyggilegra en maður sem tekur sífelldum breytingum. 3. Ekki þroskast. Epli nær fullkomnum þroska og er þá gómsætt. Allur viðbótarþroski leiðir til hrörnunar. Til að koma í veg fyrir slíkt verður markvisst að hefta allan þroska. Eða eins og slagorð okkar segir svo snyrtilega: „Viljir þú ganga á vegi réttum / fylgdu þá okkur, þroska heftum!“ Við viljum auk þess minna á að óvinir okkar leynast víða. Nefndin hefur lagt til að eingöngu verði notast við orðið „kommúnistar“ yfir alla þá óróaseggi sem ögra heimsmynd okkar enda óþarfi að finna upp ný uppnefni því tíminn breytist ekki og rauði herinn er aldrei langt undan. Að þessu sögðu hlökkum við til að hitta ykkur öll á árshátíðinni í baðstofunni á Árbæjarsafni, eina veislusal landsins sem býr yfir almennilegu kyndikerfi. Við heitum því að hafa ekki meira gaman en í fyrra heldur eins gaman. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Saga Garðarsdóttir Mest lesið Ekki loka á okkur Kristín María Birgisdóttir Skoðun Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson Skoðun Hvað verður gert á aðalfundinum á morgun Eiríkur? Björn Sævar Einarsson Skoðun Einmitt, alveg hreint stórkostleg vörn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun „Einsdæmi um réttindamissi“ Halldór Gunnarsson Skoðun Ólafur Ragnar og handboltinn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Hvar er Ísland kynnt sem umsóknarríki? Erna Bjarnadóttir Skoðun Hættum að hvísla um loðnu og gætum hagsmuna íbúa Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Að slá gras á umferðareyjum er það mikilvægara en geðheilsa barna? Grímur Atlason Skoðun 27 milljónir á mann (14.500 milljarðar) Tryggvi Hjaltason Skoðun
Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson Skoðun
Húsnæði á Íslandi er helmingi minna á færi okkar en það var fyrir tuttugu árum Arnar Kjartansson Skoðun