Viðskipti erlent

Reyna að þrýsta á leiðtoga G8-ríkjanna

Óli Kristján Ármannsson skrifar

Fjarskiptarisinn Nokia hefur lagst á árar með ONE Campaign í baráttunni gegn fátækt í heiminum með birtingu ljósmynda sem teknar eru á Lumia 920 snjallsíma fyrirtækisins.

Frá og með gærdeginum og þar til á morgun er myndunum varpað upp á vegg Tate nýlistasafnsins í London.

Myndbirtingin helst svo í hendur við tónlistarátak One, agit8, sem hleypt var af stokkunum í gær.

Með því að taka upp og gefa út á ný sígilda baráttusöngva vonast tónlistarmenn á borð við Sting, Green Day, Ed Sheeran og Mumford & Sons til þess að hafa áhrif á þjóðarleiðtoga sem sækja heim G-8 fundinn á Norður Írlandi í næstu viku.

Átakið nýtur stuðnings Bonos, söngvara U2, en hann er einn stofnenda One. Markmiðið er sagt að þrýsta á leiðtoga stærstu ríkja heims að ýta undir matvælaframleiðslu í Afríku og auka gagnsæi í alþjóðlegu hjálparstarfi.

Tónlistin er fáanleg frá og með deginum í dag á vef átaksins, one.org/protestsongs, ásamt ljósmyndunum sem ljósmyndablaðamenn, bloggarar, áhugaljósmyndara og frægðarfólk um heim allan hefur tekið á snjallsíma Nokia.

Myndirnar eiga að endurspegla baráttusöngvana á einhvern hátt. Þær er líka hægt að sjá á samskiptavefjum Twitter, undir merkinu #nokiaONECampaign, og á opinberri Facebook síðu Nokia.

Samstarfi Nokia og One var hleypt af stokkunum í gær.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×