Spiluðum frábærlega í leikjum sem skiptu engu máli Stefán Árni Pálsson skrifar 6. ágúst 2013 06:45 Fyrirliði íslenska landsliðsins var ekki sáttur við hversu stórt tapið gegn Búlgaríu var um helgina. fréttablaðið/daníel
Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði stórt fyrir Búlgaríu í fyrsta leik liðsins í undankeppni EM 2015, en leikurinn fór fram ytra á sunnudaginn. Búlgarir unnu 29 stiga heimasigur, 59-88, og stigu með honum risaskref í átt að sigri í riðlinum. Lykilmenn íslenska liðsins lentu í miklum villuvandræðum og íslenska liðið mátti sín mikils á móti stóru mönnum búlgarska liðsins. Ísland mætir Rúmeníu annað kvöld. „Þetta voru bara mikil vonbrigði og við vorum langt frá því að spila eins og við höfum verið að gera í sumar,“ sagði Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, í samtali við Fréttablaðið í gær. „Þetta var klárlega okkar versti leikur í sumar og mjög slæm tímasetning til að leika svona illa. Búlgaría er í sjálfu sér mun sterkari körfuboltaþjóð en við en munurinn á ekki að vera svona mikill. Þetta er í raun sterkasta þjóðin í allri undankeppninni sem við erum að taka þátt í.“ Ísland stóð sig vel á sterku fjögurra landa móti í sumar sem fram fór í Kína og hefur verið mikill uppgangur í leik liðsins undanfarnar vikur. „Þetta gerir okkar verkefni mjög erfitt og við þurfum að treysta á aðra en okkur sjálfa í þessari undankeppni. Liðið var að spila frábærlega fyrr í sumar en það var í leikjum sem skipta engu máli, sem gerir þetta enn meira svekkjandi. Liðið virðist hafa toppað á röngum tíma. Við ætlum okkur samt sem áður að klára Rúmenana á miðvikdaginn og koma svo heim til Íslands.“
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Körfubolti Grét af gleði þegar Mexíkó byrjaði HM á sigri á níu Suður-Afríkubúum Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Fljótasta opnunarmark HM í tuttugu ár Fótbolti „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira