Fær ekki að hætta Símon Birgisson skrifar 19. nóvember 2013 12:00 Arnar Jónsson í sveinsstyki Einleikur hans á stóra sviði þjóðleikhússins hefur slegið í gegn. Fréttablaðið/Daníel
Einleikur Arnars Jónssonar á stóra sviði Þjóðleikhússins, Sveinsstykki, hefur hlotið lofsamlega dóma og góðar viðtökur áhorfenda. Í tilkynningu frá Þjóðleikhúsinu segir að með sýningunni kveðji Arnar Þjóðleikhúsið formlega eftir 40 ára farsælan feril við leikhúsið. „Áhorfendur eru þó ekki á því að leyfa Arnari að hætta að leika og bæta hefur þurft við aukasýningum á þessari mögnuðu sýningu.“ Sveinsstykki er eftir Þorvald Þorsteinsson, sem lést fyrir aldur fram á árinu, og fjallar um mann sem æfir hátíðarræðu á starfsafmæli sínu en kemst að því að líf hans er allt ein samfelld lygi. Í dómi Jóns Viðars Jónssonar í Fréttablaðinu um verkið sagði hann: „Enginn nema leikari á borð við Arnar gæti haldið manni við slíkt efni í heilar níutíu mínútur, en það gerir hann vitaskuld svo vel að hvergi verður að fundið. Mannlýsingin öll heilsteypt og þétt, smáatriðin jafn þaulunnin og heildarbyggingin, blæbrigði eins fjölbreytt og hugsast getur.“ Aukasýningarnar eru þann 5. og 15. desember.
Menning Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira