Syngja uppáhalds- barokkaríurnar sínar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. nóvember 2013 13:00 JóhannaSyngur himneskt hádegisbarokk með Nathalíu Druzin í dag. Fréttablaðið/Valli „
Sem betur fer eigum við ekki sömu uppáhaldsbarokkaríurnar og svo erum við með talsvert ólíkar raddir þó við séum báðar mezzosópran,“ segir Jóhanna Héðinsdóttir sem ásamt Nathalíu Drusin Halldórsdóttur syngur í Háteigskirkju í hádeginu í dag. Yfirskrift tónleikanna er Himneskt hádegisbarokk. Sem dæmi um aríu sem hún ætlar að syngja nefnir Jóhanna Ombra Mai Fu úr óperunni Serse eftir Händel. „Meðal þess sem Nathalía syngur er Lachia Ch‘io Pianga sem er mjög þekkt aría og er reyndar líka eftir Händel en það er alls ekki öll efnisskráin eftir hann,“ bætir hún við og tekur fram að þær njóti píanóundirleiks Renötu Ivan. Nathalía starfar í ráðningarfyrirtæki og var að syngja í Requiem eftir Mozart með Háskólakórnum og Jóhanna er grunnskólakennari auk þess að vera í félagsskap annarra óperusöngvara í Óp hópnum. „Við erum báðar að reyna að vera söngkonur, auk þess að vera í fullu starfi og með börn. Svona er þetta hér á Íslandi.“
Menning Mest lesið Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Lífið Stiklusúpa: Sturlað leikjahaust og vetur í vændum Leikjavísir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi Lífið samstarf Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira