Ný síða um fluguhnýtingar Karl Lúðvíksson skrifar 16. janúar 2014 14:57 Þykk útgáfa af Mobuto sem hefur verið vinsæl í Þingvallavatni
Það er mikið hnýtt af flugum þessa dagana enda ekki ýkja langur tími í að næsta veiðitímabil hefjist eða rétt um tveir og hálfur mánuður. Veiðimenn stytta sér stundir þangað til við að hnýta fyrir komandi átök og leita sér gjarnan hugmynda, uppskrifta og góðra ráða á netinu. Veiðibúðin Vesturröst opnaði nýlega heimasíðu tileinkaða fluguhnýtingum og þeir félagar eru sveittir þessa dagana að henda inn efni, uppskriftum og fleiri ráðum handa þeim sem sitja við hnýtingar. Síðuna er að finna á www.fluguhnytingar.is Þegar ég hef spurt veiðifélaga mína að því hvað er helst verið að hnýta þá sitja flestir þeirra yfir silungaflugum enda fer maður líklegast hraðast í gegnum þær í boxinu svo það er gott að eiga smá lagar. Þær sem þeir hafa verið að hnýta í bunkum eru flugur eins og Peacock, Killer, Frisco, Mobuto, Taylor og Héraeyra. Þetta eru flugur sem ganga í öll vötn og mest eru þeir að hnýta í stæðrum 16-10, bæði með og án kúluhausa. Það er afskaplega gaman að hnýta sínar eigin flugur og finna nýjar útgáfur af uppáhaldsflugunum og sjá hvernig það gengur í silunginn í vor.
Stangveiði Mest lesið Allar lokatölur komnar úr laxveiðiánum Veiði Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Veiði Lækkað verð á vatnasvæði Lýsu Veiði Lokatalan í Straumunum Veiði Er sumarflugan 2014 fundin? Veiði Vikulegar veiðitölur heldur lágar víðast hvar Veiði 19 laxa dagur í Hrútafjarðará Veiði 57 laxar gengnir í gegnum teljarann í Elliðaánum Veiði Mikið um Sæsteinsugubit fyir austann Veiði Fimm stórlaxar á hitch í Víðidalsá Veiði