Fótbolti

Ísland í erfiðum riðli | Holland mætir í Dalinn

Tómas Þór Þórðarson skrifar: skrifar
Mynd/Vísir
Ísland dróst í riðil með Hollendingum, Tékkum, Tyrkjum, Kasökum og Lettum þegar dregið var í undankeppni EM 2016 í Frakklandi í dag.

Tvö efstu lið hvers riðils komast beint á EM þar sem liðum er nú fjölgað úr 16 í 24 og þá fer einnig það lið með bestan árangur í 3. sæti beint í lokakeppnina. Hin liðin sem lenda í þriðja sæti sinna riðla fara í umspil.

Það verður því ekki auðvelt verkefni fyrir strákana okkar að komast í lokakeppni Evrópumótsins en fólk getur farið að hlakka til komu Robins vans Persie, Arjens Robben og allra stórstjarnanna í hollenska liðinu.

Undankeppnin hefst í haust en nú fara menn í það að finna leikdaga og geta þeir skipt máli hvað varðar ferðalög íslenska liðsins.

Riðlarnir í undankeppni EM 2016:

A-riðill: Holland (10), Kasakstan (128), Ísland (48), Lettland (111), Tyrkland (42), Tékkland (31).

B-riðill: Bosnía, Andorra, Kýpur, Wales, Ísrael, Belgía.

C-riðill: Spánn, Lúxemborg, Makedónía, Hvíta-Rússland, Slóvakía, Úkraína.

D-riðill: Þýskaland, Gíbraltar, Georgía, Skotland, Pólland, Írland.

E-riðill: England, San Marínó, Litháen, Eistland, Slóvenía, Sviss.

F-riðill: Grikkland, Færeyjar, Norður-Írland, Finnland, Rúmenía, Ungverjaland.

G-riðill: Rússland, Lichtenstein, Moldóva, Svartfjallaland, Austurríki, Svíþjóð.

H-riðill: Ítalía, Malta, Aserbaídjan, Búlgaría, Noregur, Króatía.

I-riðill: Portúgal, Albanía, Armenía, Serbía, Danmörk.

Tölurnar innan sviga í riðli Íslands tákna stöðu liðanna á heimslista FIFA.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×