Ebba Guðný um Pistorius: „Hann er fullkominn og ég vil ættleiða hann“

„Þegar hann keppti mættum við og við mætum enn,“ segir Sigríður en barnabarn hennar, átta ára sonur Ebbu Guðnýjar, er haldinn sömu fötlun og Pistorius. Þeir eru báðir fótalausir fyrir neðan hné.
Ebba Guðný er sannfærð um að Pistorius sé saklaus, en honum er gefið að sök að hafa myrt kærustu sína, Reevu Steenkamp. Hann skaut hana til bana á heimili sínu í Pretoríu í fyrra en fullyrðir að hann hafi haldið að um innbrotsþjóf væri að ræða þegar hann hleypti fjórum skotum af í gegnum lokaða baðherbergishurð. Steenkamp var inni á baðherberginu, þrjú skot hæfðu hana, og lést hún nær samstundis.
Viss í sinni sök
„Ég vissi strax að þetta hefði gerst eins og hann lýsti því. Ég er viss í minni sök og mun alltaf verða það,“ segir Ebba Guðný. Hún segist vera uppgefin eftir réttarhöld síðustu viku, en þau halda áfram í þessari viku og næstu. „Hann er fullkominn og ég vil ættleiða hann,“ bætir hún við. „Ég held þetta hafi tekið sérstaklega á hann vegna þess að hann er svo þekktur.“
Mæðgurnar kynntust Pistoriusi þegar Ebba Guðný gekk með son sinn. Hún sendi honum tölvupóst og upp frá því urðu þau vinir. Pistorius heimsótti Ebbu Guðnýju og fjölskyldu til Íslands og að lokum fluttu þau til Suður-Afríku. Sonur Ebbu Guðnýjar lítur mikið upp til Pistoriusar og gaf spretthlauparinn honum til dæmis eina af gullmedalíum sínum.
Mæðgurnar segja réttarhöldin ekki breyta neinu um álit þeirra á Pistoriusi. „Ég trúi því að hann hafi gert svo marga frábæra hluti. Við erum ekki eina fjölskyldan sem hann hefur komið til hjálpar,“ segir Ebba Guðný. „Við trúm því að nú fái hann það til baka þegar hann þarf á því að halda.“
Pistorius á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi verði hann sakfelldur en réttarhöldin eru sögð munu standa yfir í að minnsta kosti tvær vikur til viðbótar.
Tengdar fréttir

Pistorius grét og bað fyrir Steenkamp
Réttarhöldin yfir spretthlauparanum Oscari Pistorius héldu áfram í dag.

Pistorius ákærður fyrir morð
Suðurafríski hlaupakappinn Oscar Pistorius var handtekinn í fyrrinótt og síðar ákærður fyrir að hafa orðið kærustu sinni að bana.

Ebba Guðný viðstödd réttarhöld Oscars Pistorius
Ebba fór út ásamt móður sinni síðastliðinn föstudag og stendur dvöl hennar í Suður-Afríku yfir í tvær vikur.

Sá Pistorius bera blóðugan líkamann niður tröppurnar
Segir vitnið að Pistorius hafi verið í miklu uppnámi og að þau hafi saman reynt að stöðva blæðinguna úr líkama hennar en án árangurs.

Neitar að hafa myrt kærustuna
Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag.

Hló er hann hleypti af byssu sinni
Fyrrverandi kærasta Oscars Pistorius lýsti hvernig hann hafði átt það til að snöggreiðast.

Fyrstu viku réttarhaldanna yfir Pistorius lokið
Pistorius er ákærður fyrir að hafa myrt kærustu sína, Reevu Steenkamp, en hann skaut hana í gegnum lokaða baðherbergishurð á heimili sínu í Pretoríu í Suður-Afríku í febrúar á síðasta ári. Hann segist hafa haldið að hún væri innbrotsþjófur.

Hver er Oscar Pistorius?
Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius er grunaður um að hafa myrt kærustu sína af yfirlögðu ráði að morgni 14. febrúar. En hver er þessi margumtalaði maður?

Segir Pistorius vera á barmi sjálfsmorðs
Suður-afríski spretthlauparinn Oscar Pistorius, sem sakaður er um að hafa myrt kærustu sína með köldu blóði í síðasta mánuði, er á barmi sjálfsmorðs. Þetta segir góðvinur Pistorius, Mike Azzie, í nýrri heimildarmynd breska ríkisútvarpsins um hlauparann.

Á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi
Suðurafríski spretthlauparinn Oscar Pistorius var formlega ákærður í dag fyrir morð.

Pistorius ældi í réttarsalnum
Réttarhöldin yfir íþróttamanninum halda áfram.

Blóðug krikketkylfa á heimili Pistoriusar
Lögreglan í Suður Afríku fann blóðuga krikketkylfu á heimili hlauparans Oscars Pistoriusar. Pistorius hefur verið í haldi lögreglu frá því á fimmtudag, grunaður um að hafa skotið 29 ára gamla unnustu sína, Reevu Steenkamp, til bana.

Suður-afríska íþróttahetjan Pistorius skaut kærustu sína til bana
Suður-afríska íþróttahetjan Oscar Pistorius er í haldi lögreglunnar þar í landi en hann er talinn hafa skotið kærustu sína til bana í nótt.