Í spilaranum hér að ofan má sjá bardaga Gunnars Nelson í heild sinni með íslenskri lýsingu þar sem Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA, fer á kostum að vanda.
Þessa skemmtilegu lýsingu, efst í fréttinni, á sigri GunnarsNelson gegn Rússanum OmariAkhmedov í London á laugardaginn skrifar AdamIreland, fréttamaður MMA-síðunnar mmakanvas.com.
Hann heldur áfram: „Akhmedov átti ekkert í Gunnar og var á endanum hengdur með guillotine-taki undir lok fyrstu lotu ... Hann [Gunnar] fær væntanlega að berjast við stórt nafn næst þegar við sjáum hann í UFC-búrinu. Og hann verðskuldar það.“
Ireland er ekki einn um að ausa lofi yfir okkar mann eftir frammistöðu Gunnars um helgina. Eins og greint var frá í gær var DanaWhite, forseti UFC, yfir sig hrifinn af Gunnari og veitti honum 50 þúsund dali, um fimm og hálfa milljón króna, sem sérstakan frammistöðubónus.
Þeir eru fleiri. StevenMarrocco, fréttamaður vefsíðunnar mmajunkie.com, skrifar: „Þrettán mánaða fjarvera vegna meiðsla hægði varla á Gunnari Nelson sem leit ekki út fyrir að hafa stigið fæti út úr hringnum í endurkomu sinni. Með nákvæmni á borð við skurðlækni kom hann Omari Akhmedov í gólfið og refsaði honum þar til færi gafst á að klára bardagann.“

„Þetta var virkilega sannfærandi sigur sem færir Gunnar nálægt þeim 15 efstu. Hann hafði verið lengi frá en sýndi engin merki þess. Karate-höggin litu vel út og dugðu til að negla Akhmedov í gólfið snemma. Hæfileikar hans í gólfglímu voru aldrei dregnir í efa,“ skrifar Drahota sem vill þó sjá Gunnar bæta sig standandi ef hann ætlar sér virkilega að synda með hákörlunum í veltivigtinni.
Ótal magn lofgreina um Gunnar má finna á þeim fjölmörgu MMA-vefjum sem segja fréttir af íþróttinni og eru flestir sammála um að þessi sannfærandi sigur skjóti Gunnari rækilega upp á stjörnuhimininn.
Fáeinir eru ekki alveg jafnsannfærðir og vilja sjá Gunnar berjast við mann á topp 15-listanum og jafnvel utan Evrópu, þá í Las Vegas, en Gunnar á marga aðdáendur á Bretlandseyjum og virkar London í raun eins og heimavöllur hans.
„Ósigraður og búinn að vinna þrjá UFC-bardaga í röð. Það er líklegt að Gunnar Nelson fari nú að færa sig ofar í veltivigt UFC,“ skrifarKen Pishna, fréttamaður Eurosport um bardagann.
Gunnar Nelson og frammistaða hans var mikið rædd á samfélagsmiðlinum Twitter á meðan og eftir að hann gjörsigraði Rússann. Þar fór kannski hæst að forseti UFC, Dana White, sagði Gunnar vera frábæran.
Þá var RenzoGracie, sá er kenndi Gunnari Nelson brasilískt jiu-jitsu og veitti honum svarta beltið í bardagalistinni, gríðarlega stoltur af sínum manni og sagði hann hafa allt til að fara alla leið.
Renzo Gracie er afabarn Carlos Gracie sem ásamt bróður sínum Hélio Gracie þróaði Gracie jiu-jitsu. Betri kennara er varla hægt að fá og nýtur Gunnar mikillar virðingar sem gólfglímumaður eftir að hafa fengið svarta beltið frá Renzo.
Gunnar is AWESOME!!!!
— Dana White (@danawhite) March 8, 2014
@GunniNelson did an unbelievable job @ufc London today.. The boy has everything that takes ;-) @HalliNelson I'm proud pic.twitter.com/4YQ9iYdzbB
— Renzo_Gracie_BJJ (@RenzoGracieBJJ) March 8, 2014
Gunnar Nelson is legit, a grappling wizard !
— Jamie Hickman (@SirJamieHickman) March 9, 2014
Only just watched @ufc .. There are no worlds to describe how smooth Gunnar Nelson is.
— Josh Layton (@josh_layton) March 9, 2014
@GunniNelson Surgical precision. Excellent fight.
— Curtis Mason (@SamMace70) March 9, 2014