Ter Stegen fær samkeppni hjá Barcelona Tómas Þór Þórðarson skrifar 29. maí 2014 20:30 Claudio Bravo veitir Ter Stegen aðhald á næsta tímabili. Vísir/getty
Barcelona ætlar að láta nýjan markvörð liðsins, Þjóðverjann Marc-André ter Stegen, hafa fyrir hlutunum. Börsungar eru að ganga frá kaupum á Claudio Bravo, markverði Real Sociedad, fyrir níu milljónir Evra en með árangurstengdum greiðslum gæti verðið hækkað upp í tólf milljónir Evra. Frá þessu er greint á vefnum Goal.com. Bæði Víctor Valdés og varamarkvörðurinn José Manuel Pinto eru á útleið hjá Barcelona í sumar en Pinto var aldrei líklegur til að hirða sætið af Valdés. Ter Stegen fær mun meiri samkeppni því Bravo er öflugur markvörður og er AndoniZubizarreta, fyrrverandi markvörður Barcelona og núverandi íþróttastjóri félagsins, sagður mjög hrifinn af Sílebúanum sem er 31 árs gamall. Bravo mun standa vaktina í marki Síle á HM í Brasilíu en hann kom til Real Sociedad frá Colo Colo árið 2006 og á nú að baki yfir 200 leiki fyrir Baskana. Samningur hans á að renna út sumarið 2017 en Barcelona ætlar sér að fá hann í sumar. Þó Sílebúinn sé settur Marc-André ter Stegen til höfuðs er engin spurning um hvor á að vera aðalmarkvörður liðsins. Ter Stegen hefur verið á meðal bestu markvarða þýsku 1. deildarinnar undanfarin ár en hann á þrjár heilar leiktíðir að baki þrátt fyrir að vera aðeins 22 ára gamall.
Spænski boltinn Mest lesið Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Íslenski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Fleiri fréttir Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Sjá meira