Stjórnarherinn í Írak endurheimtir Tíkrit 28. júní 2014 22:54 Stjórnarherinn í Írak sækir nú fram gegn hersveitum ISIS. Vísir/AP
Stjórnarherinn í Írak gerði í dag áhlaup á hersveitir uppreisnarmanna öfgasamtakanna ISIS í borginni Tíkrit í norðurhluta landsins, og er borgin nú að mestu á valdi stjórnarhersins. Talið er að um 60 liðsmenn ISIS hafi fallið í árásinni. BBC greinir frá þessu. Þúsundir íraskra hermanna, búnir skriðdrekum og orrustuflugvélum réðust í dag á uppreisnarmenn í borginni Tíkrit, sem er norðvestur af höfuðborginni Bagdad og verið hefur á valdi uppreisnarmanna rúmar tvær vikur. Íraska ríkissjónvarpið greindi frá því að árásin hafi borið tilætlaðan árangur, þar sem tekist hefði að hrekja uppreisnarmenn frá borginni. Um 60 uppreisnarmenn féllu í árásinni, þar á meðal háttsettir foringjar. Harðir bardagar milli uppreisnarmanna og stjórnarhersins voru einnig sunnan við Bagdad, þar sem um 20 stjórnarhermenn féllu. Að sögn íraska ríkissjónvarpsins býr íraski stjórnarherinn sig nú undir að sækja í norðurátt, að næststærstu borg landsins, Mosul, sem uppreisnarmenn hafa á sínu valdi. Talið er að aðgerðir stjórnarhersins í Tíkrit hafi verið framkvæmdar í nánu samráði við bandaríska hernaðarráðgjafa sem nú eru í landinu. Bandarískir hermenn taka þó ekki beinan þátt í aðgerðunum.
Mið-Austurlönd Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Innlent „Mjög óheillavænleg þróun“ Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Innlent „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Erlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira