Zidane þjálfar Zidane hjá Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júní 2014 12:30 Zinedine Zidane. Vísir/Getty
Frakkinn Zinedine Zidane hefur tekið við þjálfun varaliðsins hjá Real Madrid en það var formlega tilkynnt á heimasíðu spænska félagsins í dag. Florentino Perez, forseti Real Madrid, vildi alls ekki missa Zidane frá Real Madrid en Frakkinn hafði sett stefnuna á þjálfun. Zinedine Zidane var aðstoðarmaður Carlo Ancelotti hjá aðalliði Real Madrid á þessu tímabili og vann einnig með forvera Ancelotti, Jose Mourinho. Það leit út um tíma að Zidane væri að fara taka við franska liðinu Bordeaux en ekkert varð úr því eftir að fréttist að hann fengi ekki pening til að styrkja liðið. Zidane mun taka við mjög spennandi liði en Miguel Angel Lara, blaðamaður Marca, hefur lýst þessum strákum sem næstu gullaldarkynslóð hjá félaginu. Zidane er þar með á sömu leið og Pep Guardiola fór hjá Barcelona á sínum tíma en hann þjálfaði þá fyrst b-lið Barcelona áður en hann tók við aðalliðinu með frábærum árangri. Zinedine Zidane, sem er 42 ára gamall, mun þarna þjálfa elsta son sinn en Enzo Zidane spilar með varaliði Real Madrid. Zidane þjálfar Zidane hjá Real Madrid á næsta tímabili.
Spænski boltinn Mest lesið Neitaði að stökkva í skíðastökki: „Ég hugsaði um kærustuna mína“ Sport „Það er gott að ná að taka einn titil frá þeim“ Sport Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Fótbolti Uppgjör: Ísland - Portúgal 62-60 | Frábær sigur Íslands Körfubolti PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Fótbolti Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Fótbolti „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Fótbolti Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Fótbolti Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Fótbolti Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City Fótbolti Fleiri fréttir „Ég er gjörsamlega búinn á því“ Marokkó er Afríkumeistari í fótbolta Rauða spjald Bernando Silva lamaði endurkomu City PSG sendi Chelsea-menn skömmustulega út úr Meistaradeildinni Stórbrotið mark Eze og Arsenal örugglega áfram Norska ævintýrið endaði með martröð í Portúgal Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn FIFA neitar að færa HM-leiki Írans til Mexíkó Gamli Valsarinn valinn í danska landsliðið Isak sást á æfingu Liverpool Guðrún ætlar að slást við Fanneyju og Thelmu um titilinn Þurfa á fullkomnu kvöldi að halda Kemur alltaf í Þór Íranar reyna að færa leikina til Mexíkó Skoraði ekki fyrir Val en kostar núna 1,7 milljarð Pabbinn urðaði yfir þjálfara sem sá að sér Sjáðu Albert í essinu sínu þrátt fyrir innbrotið Stórstjarnan biðlar til stuðningsmanna Liverpool Liðsfélagi Sveindísar spilaði sinn fyrsta leik eftir hjartastoppið „Dyrnar eru alltaf opnar fyrir Messi“ „Fyrirgefðu mamma“ Úlfarnir unnu upp tveggja marka forskot og voru hársbreidd frá sigri Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð „Allir vildu að hann yrði áfram hjá Man. United“ Fær ekki að spila hjá Liverpool en er kominn í norðurírska landsliðið Neymar ekki valinn í landsliðið en bæði Thiago og Endrick í hópnum Guðrún áfram í undanúrslitin með Hammarby Vona að þeir leysi vandamálin og Íran verði með á HM Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Sjá meira