Fótbolti

Falcao hafði betur gegn Pablo Punyed

Anton Ingi Leifsson skrifar
Pablo fagnar marki gegn FH.
Pablo fagnar marki gegn FH. Vísir/Daníel
Pablo Punyed spilaði allan leikinn fyrir El Salvador í æfingarleik gegn Kólumbíu í fyrrinótt. Leiknum lauk með 3-0 sigri Kólumbíu, en Radamel Falcao, leikmaður Manchester United, lék á alls oddi.

Falcao kom Kólumbíu yfir eftir átta mínútna leik og lagði svo upp tvö mörk fyrir Carlos Bacca á þriggja mínútnu kafla í upphafi síðari hálfleiks.

Pablo spilaði allan leikinn í liði El Salvador, en hann var verðlaunaður með sæti í landsliðinu eftir frábært tímabil sem hann átti með Stjörnunni hér heima í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×