Ástarbréf til heimsins Saga Garðarsdóttir skrifar 14. febrúar 2014 06:00 Allar Önnur í Afríku, Malíkar Grænlands, Litháar, kaffidrekkandi Kínverjar, Svíar sem flokka ekki rusl, gagnkynhneigðir skautadansarar, ófullnægðar unglingsstelpur, graðir búddistar, glaðir Samar, Indverjar í ástarsorg, Finnar í Hlíðunum, konan sem seldi mér ilmvatn á Rue du Borg Tibourg, strákarnir sem rændu mig í sumar, lögfræðingurinn minn, og þeirra, amma mín, Breivik, nauðgarar, samverjar, skipverjar, einherjar, þú og þið hin. Stundum ligg ég andvaka og hugsa um hvað þið séuð að gera. Hvort ég hitti ykkur öll á morgun, hvort einhvern tíma komi sá dagur að við sjáumst öll, nótt þar sem ég mæti ykkur öllum í draumi, einu af öðru og þakka ykkur fyrir allar hugmyndirnar, áhyggjurnar, reiðina, hlátrana og myndböndin af ykkur á YouTube. Sum þeirra eru mjög góð. Oftast sef ég þó og oftast er mér sama. Sjaldan er ég sanngjörn. Sum ykkar hef ég hatað án þess að þekkja, sum án þess að skammast mín, sum alltof lítið og einhverja í hárnákvæmu magni. Suma hef ég blekkt, aðra hrekkt, ég hef rifist vitandi að ég hafði rangt fyrir mér, neitað að fyrirgefa til að pína, ég hef hugsað illa til Mæðrastyrksnefndar, leitað hefnda og fundið til annarlegra kennda. Ég hef verið fífl. Og á köflum andstyggilegt fífl. En stundum skipta gallar og mistök mig engu. Ég gleymi bráðnandi jöklum, sól sem fuðrar upp fyrir rest og stjörnuþokunni Andrómedu sem mun sundra okkur öllum á endanum. Þá megið þið vera mér ósammála um allt, hella sápu í sjóinn, setja dömubindi í klósettin, kaupa ykkur ólífræna útlenska innflutta óhamingjusama genabætta tómata úr mengandi flugvélum af ökrum ósanngjarnra óðalsbænda sem borga engum fyrir að tína þá. Og ég hef aldrei sagt ykkur þetta. Öllum í einu; Ekkert hreyfir mig meira en þú, elsku mannkynið mitt. Ef ég skyldi ekki ná ykkur öllum saman eða hitta á rétta drauminn langar mig að þakka ykkur, hér og nú, fyrir allar vökustundirnar, fíflaskapinn og algleymið. Takk fyrir allar tilfinningarnar. Án ykkar væri mér alltaf sama. Einmitt núna, þegar einhver hrasar í hlíðum Himalaja og Austurvöllur lyktar eins og allt gubb síðasta vetrar, er líkami minn undirlagður af ást til ykkar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Saga Garðarsdóttir Mest lesið Eru stjórnarandstæðingar viljandi að misskilja samsköttun? Þórhallur Valur Benónýsson Skoðun Spilavíti er og verður spilavíti Tryggvi Rúnar Brynjarsson Skoðun Þjónusturof hefst í dag Hanna Birna Valdimarsdóttir Skoðun Verjum frelsið og mannréttindin Sigurjón Njarðarson Skoðun Skortur á metnaði í loftslagsmálum Svandís Svavarsdóttir,Guðmundur Ingi Guðbrandsson Skoðun „Mér sýnist Inga Sæland fá talsvert út úr þessu“ Sigurjón Arnórsson Skoðun Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun Árangur hefst hér. Með þér. Guðrún Högnadóttir Skoðun Konur sem stinga hvor aðra í bakið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Leiðtogi sem nær árangri Birkir Jón Jónsson Skoðun
Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun
Þegar lýðheilsa, lýðræði og loftslagið eru í húfi, ekki efla samstarf við Bandaríkin Davíð Aron Routley Skoðun