Búa til skúlptúra í anda Ásmundar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 19. júní 2014 13:30 Valin verk utan og innan dyra verða skoðuð í listsmiðjunni og spjallað um tilurð þeirra og efni. „
Við byrjum á að skoða sýninguna Meistarahendur með börnunum og eftir það fá þau frjálsar hendur til að vinna þrívíð verk. Það kemur örugglega eitthvað skemmtilegt út úr því,“ segir Ásdís Spanó myndlistarmaður. Hún og Hugrún Þorsteinsdóttir arkitekt leiða listsmiðju sem Listasafn Reykjavíkur í Ásmundarsafni stendur fyrir nú á föstudag og laugardag fyrir börn á aldrinum sex til níu ára. Börnin munu kynnast verkum og byggingu Ásmundar Sveinssonar ásamt því að fá tækifæri til þess að spreyta sig á eigin listsköpun, innblásinni af verkum hans. En úr hverju eiga þau að vinna? „Þau fá efnivið eins og leir, pappír, pappa og vír og ættu að geta búið til skúlptúra í anda Ásmundar,“ segir Ásdís glaðlega. Listsmiðjan er dagsnámskeið og fer fram frá klukkan 10 til 13 báða dagana. Það er í boði Listasafns Reykjavíkur og er foreldrum að kostnaðarlausu.
Menning Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira