Finnskar ljósmyndir í Norræna húsinu 17. júlí 2014 12:30 Samar í Afríku. Á myndunum klæðast Dahlsten og Laakso Samaþjóðbúningum, sem þau hafa fengið í arf, saumað sjálf eða eru sérsaumaðir fyrir þau. MYND/Dahlsten og Laasko
Sýningin Jump in Diorama verður opnuð í anddyri Norræna hússins 25. júlí. Sýningin er ljós- og hreyfimyndasýning finnsku listamannanna Anniku Dahlsten og Markku Laakso en þau hafa undanfarin ár sýnt ljósmyndir, fjölmiðlaverk og gjörninga víða um lönd. Sýningin Jump in Diorama leggur áherslu á heimildargildi ljósmynda, sviðsetningu og spurninguna um það hvað er ekta og hvað óekta. Listamennirnir sýna myndir og myndbandsskot af mismunandi náttúrulandslagi í Lapplandi, Þýskalandi og Suður-Afríku og á mörgum myndanna bregður fyrir mönnum og dýrum sem hafa óvart slæðst inn á þær. Þau Dahlsten og Laakso klæðast á myndunum Samaþjóðbúningum, sem þau hafa fengið í arf, saumað sjálf eða eru sérsaumaðir fyrir þau. Verkefnið er innblásið af fjölskyldusögu Markku Laakso. Árið 1930 ferðuðust föðurafi hans og -amma til Þýskalands til þess að verða sýningargripir sem Samar í hinum ýmsu dýragörðum. Með í för voru rúmlega þrjátíu manns frá Finnlandi, Noregi og Svíþjóð sem ferðuðust í átta mánuði milli dýragarða í Þýskalandi.
Menning Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira