Fundu sögurnar á bak við nöfnin Friðrika Benónýsdóttir skrifar 30. júlí 2014 11:30 „Útkoman er svo þessi fallega klukkutíma sýning sem við unnum upp úr sögum og lögum sem við þekkjum um sjómennina og líf þeirra.“ Vísir/Stefán
Þetta er samstarf Hollvina Húna II og Leikfélags Akureyrar sem fengu styrk frá Menningarsjóði Eyþings til þess að búa til leiksýningu um borð í Húna II,“ segir Vala Höskuldsdóttir, leikstjóri sýningarinnar Sértu velkominn heim sem frumsýnd verður í kvöld. „Leikararnir eru úrvalslið úr leiklistarskóla L.A. á aldrinum 13 til 15 ára. Upprennandi stjörnur, auðvitað, og mörg þeirra hafa oft stigið á svið áður. Þetta er algjört stórskotalið.“ Vala segir strangar æfingar hafa staðið yfir allan júlí. „Þemað sem við fengum var strandmenning og við höfum verið að safna sögum frá sjómönnum, öfum, ömmum og ýmsum fræðingum um það hvernig lífið var í strandbæjunum þegar við vorum öll miklu tengdari sjónum en við erum núna. Auk þess töluðum við við fræðing sem samdi lokaritgerðina sína um óskalög sjómanna. Útkoman er svo þessi fallega klukkutíma sýning sem við unnum upp úr sögum og lögum sem við þekkjum um sjómennina og líf þeirra.“ Spurð hvort verkið sé söngleikur segir Vala að það megi alveg segja það. „Það er mikið sungið og svo finnum við sögurnar á bak við ýmis nöfn sem við þekkjum eins og Hríseyjar-Mörtu og Siglufjarðar-Geira til dæmis.“ Aðeins þrjár sýningar eru fyrirhugaðar á Akureyri, í kvöld og miðvikudags- og fimmtudagskvöld í næstu viku, en síðan verður siglt um Eyjafjörðinn og sýnt á Dalvík, Grenivík og í Hrísey. Áhorfendafjöldi takmarkast við stærð bátsins og einungis verða seldir fimmtíu miðar á hverja sýningu. Á Akureyri liggur báturinn við Torfunesbryggju, „litlu bryggjuna á móti Subway,“ eins og Vala orðar það og miðasala er bæði á netfanginu midasala@leikfelag.is og við innganginn.
Menning Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira