Söngurinn númer eitt, tvö og þrjú Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 15. ágúst 2014 16:30 Sigríður Thorlacius, Ásta Björg Björgvinsdóttir, Gunnar Gunnarsson, Tómas R. Einarsson, Kristófer Rodríguez Svönuson, Guðný Anna Árnadóttir og Anna Dúna Halldórsdóttir. Þær Ásta Björg, Guðný Anna og Anna Dúna eru úr tólf manna sönghópnum Við Tjörnina. Fréttablaðið/Stefán
Lögin Stolin stef, Hjarta mitt og Þú ert eftir Tómas R. Einarsson eru meðal laga sem hljóma á útgáfutónleikum í Norðurljósasal Hörpu á sunnudagskvöldið klukkan 20. Þeir eru haldnir til að fagna Mannabörnum, nýútkomnum diski með músík Tómasar R. í útsetningum Gunnars Gunnarssonar píanóleikara og organista. Tónleikarnir eru á dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur. Flytjendur eru söngkonan Sigríður Thorlacius, Sönghópurinn Við Tjörnina, sem er tólf manna blandaður kór, Tómas, Gunnar og kóngaleikarinn Kristófer Rodríguez Svönuson. Best að heyra í höfuðpaurnum Tómasi. „Þetta eru átján sönglög, frá síðustu þrjátíu árum, sem ég hef samið við ljóð eftir ýmis góðskáld frá 20. öldinni. Svo á ég nokkra texta. Ég var kannski búinn að semja lag og þegar sú hugmynd kom upp að syngja það vantaði texta og þá neyddist ég til að berja hann saman sjálfur,“ segir Tómas glaðlega. „En ég kalla hitt fólkið skáld en sjálfan mig textasmið, geri sterkan greinarmun þar á milli.“ Tónleikarnir eru liður í Jazzhátíð Reykjavíkur. „Þetta er ekki alvenjulegasta djassmúsíkin getum við sagt, því þarna er höfuðáhersla á sönginn en allt eru þetta lög sem hafa komið út á djassplötum mínum og eru upphaflega djasslög þó söngurinn sé núna númer eitt og tvö og þrjú,“ lýsir Tómas og segir það forvitnilegt og skemmtilegt að heyra lögin í þessari útgáfu, þar sem allt snúist um laglínuna en fá djasssóló. „Lögin eru samt ekki í einföldum búningi því útsetningar Gunnars Gunnarssonar eru bæði fjölbreyttar og mjög flottar. Það hefur ekki verið gert mikið að því að útsetja djasslög fyrir blandaðan kór, ég vil ekki segja að þetta sé í fyrsta skipti en það fer nálægt því, að minnsta kosti í heilu verkefni af þessu tagi.“ Í Sönghópnum Við Tjörnina er ungt fólk sem Gunnar hefur unnið með í Fríkirkjunni og flest er það í tónlistarnámi, að sögn Tómasar. „Þetta eru ungar og ferskar raddir, fólk sem er með annan fótinn í atvinnumennsku í tónlist.“ Sigríður Thorlacius er þekktust meðal jafningja í söngnum. „Mér datt í hug að gaman væri að fá einsöngvara til að syngja á móti kórnum hér og hvar, til að auka fjölbreytnina“ segir Tómas. „Svo þegar við vorum búin að fá Sigríði til liðs við okkur var hún svo hrikalega góð að við freistuðumst til að fá hana í flest lögin.“
Menning Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira