Sýnir bæði eigin verk og verk Kjarvals 27. september 2014 15:00 Listamaðurinn Andreas Eirikson sýnir eigin verk er sýningarstjóri á annarri sýningu og verður með listamannaspjall á Kjarvalsstöðum á morgun.
Sýningarnar Roundabouts og Efsta lag verða opnaðar í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum í dag klukkan 16. Á sýningunni Roundabouts eru verk eftir sænska listamanninn Andreas Eriksson og hann er jafnframt sýningarstjóri sýningarinnar Efsta lags en þar eru bæði verk eftir hann sjálfan og Jóhannes S. Kjarval. Verkin á sýningunni Roundabouts eru frá síðustu tíu árum og eru heildaryfirlit verka listamannsins, málverk, ljósmyndir, höggmyndir, kvikmyndir og vefnaður. Andreas Eriksson hefur unnið að málaralist í rúma tvo áratugi en hann sækir oft hugmyndir sínar til náttúrunnar og í umhverfið kringum heimili sitt í Kinnekulle á Vestur-Gotlandi í Svíþjóð, þar sem hann er einnig með vinnustofu. Á morgun klukkan 15 munu þeir Eriksson og Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur, spjalla við gesti um sýningarnar á Kjarvalsstöðum.
Menning Mest lesið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Lífið samstarf Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira