Enski boltinn

Fimm mörk frá Vigni í jafntefli

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/valli
Vignir Svavarsson skoraði fimm mörk í jafntefli HC Midtjylland gegn GOG Håndbold í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Lokatölur urðu 27-27 eftir æsispennandi lokamínútur. Staðan var 15-15 í hálfleik.

Vignir og félagar í Midtjylland voru komnir með fimm marka forystu á tímapunkti í síðari og virtust ætla sigla sigrinum heim. Svo varð ekki og lokatölur jafntefli.

Vignir skoraði fimm mörk úr átta skotum, en hann var einu sinni rekinn útaf í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×