Enski boltinn

Frábær sigur Guif á Hamburg

Anton Ingi Leifsson skrifar
Atli Ævar skoraði tvö mörk.
Atli Ævar skoraði tvö mörk. vísir/aðsend
Eskilstuna Guif vann frábæran sigur á HSV Hamburg í átta liða úrslitum EHF-bikarsins, 29-26, en þetta var fyrri leikur liðanna.

Þýska stórliðið var einu marki yfir í hálfleik, 13-12, en í síðari hálfleik spýttu heimamenn í Guif í lófana og unnu að lokum þriggja marka sigur.

Viktor Östlund, Daniel Pettersson og Mathias Tholin voru markahæstir hjá Guif með fimm mörk hver. Kentin Mahé gerði átta mörk fyrir HSV.

Atli Ævar Ingólfsson gerði tvö mörk fyrir Guif og Aron Rafn Eðvarðsson var í markinu. Kristján Andrésson þjálfar Guif, en liðin mætast í Þýskalandi næsta sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×