Enski boltinn

Dagur í úrslit með Füchse

Anton Ingi Leifsson skrifar
Dagur á hliðarlínunni.
Dagur á hliðarlínunni. vísir/getty
Dagur Sigurðsson og lærisveinar í Füchse Berlin tryggðu sér sæti í úrslitum EHF-bikarsins með sigri á Gorenje Velenje í undanúrslitum, 27-24.

Füchse var sterkari aðilinn og leiddi meðal annars 12-9 og 15-10 á tímapunkti í fyrri hálfleik. Staðan var svo 16-12 fyrir Füchse í hálfleik.

Í síðari hálfleik héldu Berlínarrefirnir áfram, en Gorenje náði að saxa aðeins á forskotið. Lokatölur urðu svo þriggja marka sigur Berlínarliðsins, 27-24.

Dagur Sigurðsson er þjálfari Füchse, en þeir mæta öðru þýsku liði í úrslitaleiknum á morgun; HSV.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×