Edda Heiðrún Bachman hlaut Heiðursverðlaun Sviðslistasambands Íslands fyrir ævistarf sitt í þágu sviðslista á Íslandi. Hið sívinsæla leikrit Henrik Ibsens Dúkkuheimili var valin sýning ársins en Konan við 1000° leikrit ársins.
Kynnar á sýningunni í kvöld voru bræðurnir Kjartan og Árni Pétur Guðjónssynir. Hér fyrir neðan má sjá alla verðlaunahafa kvöldsins.
Athugasemd blaðamanns: Þau leiðinlegu mistök áttu sér stað í kvöld að listi yfir verðlaunahafa, sem afhentur er fréttamiðlum fyrir hátíðina, var birtur á Vísi áður en afhendingunni var alveg lokið. Vísir harmar yfirsjón sína og biður hlutaðeigandi afsökunar.
Sýning ársins 2015
Dúkkuheimili eftir Henrik Ibsen í sviðsetningu Borgarleikhússins
Leikrit ársins 2015
Konan við 1000° eftir Hallgrím Helgason. Leikgerð - Hallgrímur Helgason, Símon Birgisson og Una Þorleifsdóttir. Í sviðsetningu Þjóðleikhússins.
Leikstjóri ársins 2015
Harpa Arnardóttir fyrir Dúkkuheimili í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Leikari ársins 2015 í aðalhlutverki
Þór Tulinius fyrir Endatafl í sviðsetningu leikhópsins Svipir og Tjarnarbíós.
Leikkona ársins 2015 í aðalhlutverki
Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir Dúkkuheimili í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Leikari ársins 2015 í aukahlutverki
Ólafur Egill Egilsson fyrir Sjálfstætt fólk í sviðsetningu Þjóðleikhússins.

Halldóra Geirharðsdóttir fyrir Billy Elliott í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Leikmynd ársins 2015
Ilmur Stefánsdóttir fyrir Dúkkuheimili í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Búningar ársins 2015
Filippía I. Elísdóttir fyrir Dúkkuheimili í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Lýsing ársins 2015
Björn Bergsteinn Guðmundsson fyrir Dúkkuheimili í sviðsetningu Borgarleikhússins.
Tónlist ársins 2015
Ben Frost fyrir Black Marrow í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.
Hljóðmynd ársins 2015
Eggert Pálsson og Kristján Einarsson fyrir Ofsa í sviðsetningu Aldrei óstelandi og Þjóðleikhússins.
Söngvari ársins 2015
Kristinn Sigmundsson fyrir Don Carlo í sviðsetningu Íslensku óperunnar.

Þyri Huld Árnadóttir fyrir Sin í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.
Danshöfundur ársins 2015
Damien Jalet fyrir Les Médusées í sviðsetningu Íslenska dansflokksins.
Útvarpsverk ársins 2015
Blinda konan og þjónninn eftir Sigurð Pálsson. Leikstjórn – Kristín Jóhannesdóttir í sviðsetningu Útvarpsleikhússins - RÚV.
Sproti ársins 2015
Tíu fingur fyrir Lífið – stórskemmtilegt drullumall eftir Helgu Arnalds, Charlotte Böving, Sólveigu Guðmundsdóttur og Svein Ólaf Gunnarsson. Í sviðsetningu leikhússins Tíu fingur.
Barnasýning ársins 2015
Lífið – stórskemmtilegt drullumall eftir Helgu Arnalds, Charlotte Böving, Sólveigu Guðmundsdóttur og Svein Ólaf Gunnarsson. Í sviðsetningu leikhússins Tíu fingur.
Heiðursverðlaun Leiklistarsambands Íslands 2015
Edda Heiðrún Backman