Viðskipti erlent

Petrobras gæti þurft að greiða hæstu sekt í bandarískri réttarsögu

ingvar haraldsson skrifar
Mikil reið er meðal almennings í Brasilíu vegna framferði stjórnenda Petrobras.
Mikil reið er meðal almennings í Brasilíu vegna framferði stjórnenda Petrobras. nordicphotos/afp
Brasilíska olíufélagið Petrobras gæti átt yfir höfði sér 1,6 milljarða bandaríkjadala sekt, jafnvirði um 212 milljarða íslenskra króna vegna rannsókna bandarískra yfirvalda á spillingarmálum tengdum fyrirtækinu. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir heimildarmanni sínum. Petrobras, sem er að meirihluta í eigu brasilíska ríkisins, á því yfir höfði sér hæstu sekt sem bandarísk stjórnvöld hafa lagt á nokkurt fyrirtæki að sögn heimildarmannsins.

Tvö til þrjú ár gæti tekið að semja um endanlega um bæturnar. Formlegarar viðræður eru þó ekki hafnar.

Bandarísk yfirvöld hafa lögsögu í málinu því Petrobras var skráð í Kauphöllina í New York. Fyrirtækið var þar til nýlega stærsta erlenda fyrirtækið í Kauphöllinni í New York.

Í nóvember sendir bandaríska verðbréfaeftirlitið (SEC) stefnu þar sem farið var fram á upplýsingar vegna rannsóknar á spillingu hjá Petrobras sem talin er hafa náð til æðstu yfirmanna fyrirtækisins, verktaka og hátt settra brasilískra stjórnmálamanna. Lögmenn Petrobras segja fyrirtækið hins vegar fórnarlamb spillingar og verðsamráðs verktaka, og fyrrum starfsmanna og stjórnmálamanna sem tekið hafi við mútum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×