Flóttamenn reknir úr lestarvögnum í Ungverjalandi Samúel Karl Ólason skrifar 3. september 2015 14:02 Flóttafólkið hélt að það væri að fara til Austurríkis, en þess í stað var lestin stöðvuð við Biscke þar sem starfræktar eru flóttamannabúðir. Vísir/AFP
Í morgun fjölmenntu flóttamenn, sem flestir eru frá Sýrlandi, inn í Keleti lestarstöðina í Búdapest í Ungverjalandi í morgun, þegar hún var opnuð á ný eftir tveggja daga lokun. Þrátt fyrir að þeim hafi verið tilkynnt að engin lest væri á leið til Vestur-Evrópu, fylltu þau lest í stöðinni. Á endanum var lestinni ekið af stað. Flóttafólkið hélt að það væri að fara til Austurríkis, en þess í stað var lestin stöðvuð við Biscke þar sem starfræktar eru flóttamannabúðir. Tugir þeirra lögðust á lestarteinana til að mótmæla því að færa ætti þau í flóttamannabúðir. Lögregluþjónar í óeirðarbúningum með kylfur fjarlægðu fólkið úr lestinni. Lögreglan hefur lýst lestarstöðinni við Biscke sem „aðgerðarsvæði“ og fjölmiðlafólk hefur verið rekið af vettvangi. Samkvæmt Sky News bíða hundruð enn í Keleti í Búdapest eftir því að komast í lestir. Síðustu daga hafa þúsundir sofið við lestarstöðina, en minnst 150 þúsund flóttamenn hafa farið til Ungverjalands á þessu ári. Þaðan reyna þau að komast til annarra ríkja álfunnar.
Flóttamenn Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira