Viðskipti erlent

Budweiser og Peroni mögulega undir sama hatt

Sæunn Gísladóttir skrifar
AB InBev framleiðir meðal annars Budweiser, Stella Artois og Corona.
AB InBev framleiðir meðal annars Budweiser, Stella Artois og Corona. Vísir/EPA
Bjórrisarnir AB InBev og SABMiller standa í viðræðum um sameiningu. Ef að sameiningu verður mun samstæðan eiga þriðjung af markaðshlutdeild bjórs í heiminum. AB InBev framleiðir meðal annars Budweiser, Stella Artois og Corona, á meðan SABMiller á Peroni og Grolsch. AB InBev hefur nálgast SABMiller til að ræða sameiningu, en óvíst er ennþá hvort úr verði. AB InBev á eftir að senda kauptilboð og óvíst er hversu hátt það verði. Samkvæmt hlutabréfaverði gærdagsins myndi samstæðan hins vegar vera 230 milljarða dollara virði. Hlutabréfaverð SABMiller hækkaði um 20% þegar tilkynnt var um samningaviðræðurnar, á meðan hlutabréf AB INBev hækkuðu um 11% í verði.

Í frétt BBC um málið segir sérfræðingur að ekki væri um sameiningu að ræða frekar myndi þetta líkjast yfirtöku AB InBev á SABMiller. Aðrir sérfræðingar óttast að markaðshlutdeild samsteypunnar yrði allt of stór.

Frétt BBC um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×